Wayne Rooney, einn frægasti og besti knattspyrnumaður sem England hefur átt hefur opnað sig um veðmálafíkn sem hann glímdi við. Rooney kveðst hafa tapað 100 milljónum á stuttum tíma, eða um fimm mánuðum. Þá kveðst hann hafa tapað 9 milljónum á tveimur klukkustundum í spilavíti.
Rooney gekk í raðir Derby á dögunum en það er veðmálafyrirtækið, 32Red sem borgar laun framherjans þar. Hann hjálpar fyrirtækinu að vekja athygli á veðmálafíkn.
Rooney þénaði um talsvert skeið 300 þúsund pund á viku eða 45 milljónir króna, hann fór því ekki á hausinn við að tapa 100 milljónum en áttaði sig á vandamálinu.
,,Ég var ungur maður sem átti mikið af peningum, þegar það voru útileikir hjá United þá varstu á hóteli. Með enska landsliðinu, þá varstu á hóteli í sjö eða tíu daga,“ sagði Rooney.
,,Þér fór að leiðast, þú þurftir að eyða tíma. Veðmál voru eitt af því sem ég gerði. Það var svo einfalt að veðja í símanum, þetta voru ekki eins og alvöru peningar. Þetta var ekki eins og að fara og leggja veðmál, þar sem voru takmörk fyrir eyðslu.“
,,Svo fattar þú að þú ert að tapa miklu. Ég byrjaði á að vinna, og hugsaði að þetta væri nú ekki flókið. Þetta nær þér á endanum og þú tapar. Ég fór að reyna að vinna upp tapið, það hefur áhrif á frammistöðu sína þegar þú tapar svona fjármunum. Ég borgaði það sem ég skuldaði og hef ekki veðjað síðan. Ég lærði af mistökum mínum.“
,,Ef þú heldur áfram að veðja, þá tapar þú meira. Þá ertu kominn á vondan stað.“