Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, var ekki upp á sitt besta í leik gegn Arsenal í gær.
Lingard fékk tækifæri í byrjunarliðinu gegn Arsenal í leik sem lauk með 2-0 tapi United.
Starfsmaður beIN Sports var ekki hrifinn af Lingard í gær er hann lýsti leiknum á stöðinni.
,,Ef ég væri stjórinn þá myndi ég senda Jesse Lingard heim í hálfleik,“ sagði lýsandinn.
,,Hann býr ekki til neitt pláss fyrir Manchester United, hann er bara fyrir á vellinum.“
Það var enginn leikmaður United sem skein á Emirates í gær en liðið virkaði ósannfærandi mest allan leikinn.