Luis Nani, fyrrum stjarna Manchester United, segir að hann hafi aldrei verið í skugga Cristiano Ronaldo, Wayne Rooney eða Ryan Giggs hjá félaginu.
Nani er 33 ára gamall í dag en hann lék með United frá 2007 til 2015 eftir að hafa komið frá Sporting.
Nani var ekki alltaf skærasta stjarnan á Old Trafford en hann var alltaf sáttur við sitt hlutverk.
,,Nei mér leið aldrei eins og ég væri í skugganum á Ronaldo, Rooney eða Giggs,“ sagði Nani.
,,Það voru engir skuggar í þessu liði. Við vorum með stórkostlegt lið.“
,,Ég spilaði með Ronaldo í byrjunarliðinu margoft. Við vorum með tvö leikplön, stundum spilaði Nani með Ronaldo og stundum Ronaldo með Rooney.“