Alisson Becker, markvörður Liverpoool, hefur verið kosinn besti brasilíski leikmaðurinn í Evrópu.
Þetta var staðfest í dag en Alisson fékk að launum Samba verðlaunin sem eru afhent í Brasilíu.
Alisson er 27 ára gamall markmaður og vann Meistaradeildina og HM félagsliða með Liverpool árið 2019.
Einnig vann hann gullhanskann á Englandi eftir að hafa haldið hreinu 21 sinnum í deildinni.
Alisson fékk 35,54 prósen atkvæða en í öðru sæti var liðsfélagi hans, Roberto Firmino.