Eins og flestir vita þá er myndbandstæknin VAR gríðarlega umdeild á Englandi en henni var bætt við á þessu tímabili.
Margir VAR dómar hafa verið mjög umdeildir á tímabilinu og þá sérstaklega þegar kemur að rangstöðum.
Við megum búast við alveg eins dómgæslu á árinu 2020 og byrjaði VAR nýja árið með látum.
Í gær var tekið mark af Jack Grealish gegn Burnley er Aston Villa vann góðan 1-2 útisigur.
Það er nánast ómögulegt að sjá það að Grealish hafi verið rangstæður er hann skoraði eftir 10 mínútur gegn Burnley.
Hæll Grealish var sagður vera fyrir innan eins og má sjá hér.