Það eru engar líkur á að Wilfried Zaha sé á leið til Chelsea í janúarglugganum frá Crystal Palace.
Þetta segir stjóri Chelsea, Frank Lampard, en hann var spurður út í möguleg skipti í gær.
Zaha er mikilvægasti leikmaður Palace en hann er hins vegar ekki á leið til Chelsea miðað við orð Lampard.
,,Ég myndi ekki tala um Zaha og það að fá hann hingað er eitthvað sem ég hef aldrei pælt í,“ sagði Lampard.
Það er þó talið líklegt að Zaha fari frá Palace en hann er á óskalista þónokkra liða í Evrópu.