Knattspyrnumaðurinn Sölvi Geir Ottesen var í gærkvöld útnefndur íþróttamaður Víkings fyrir árið 2019.
Sölvi Geir var fyrirliði karlaliðs Víkings þegar það varð bikarmeistari í fyrsta sinn í 48 ár. Sölvi var valinn besti leikmaður liðsins af bæði leikmönnum og stjórn knattspyrnudeildar á lokahófi deildarinnar eftir tímabilið. Hann spilaði alls 24 leiki á tímabilinu og gerði þrjú mörk.
Þetta var annað tímabil Sölva Geirs með liðinu síðan hann kom heim úr atvinnumennsku, en á sínum atvinnumannaferli lék hann með liðum í Svíþjóð, Danmörku, Rússlandi, Kína og Taílandi.
Hann fór út í atvinnumennsku árið 2004 og fyrir utan bikarmeistaratitilinn í sumar með Víkingi hefur hann einnig orðið sænskur meistari og bikarmeistari, tvöfaldur danskur meistari og bikarmeistari, sem og kínverskur bikarmeistari.
Aðrir sem voru tilnefndir í kjörinu eru:
Agnes Brynjarsdóttir, borðtennis
Dennis van Eijk, hjólreiðar
Egill Sigurðsson, tennis
Hilmar Snær Örvarsson, skíði
Hjalti Már Hjaltason, handknattleikur