Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus fer inn í nýtt ár með nýja hárgreiðslu, tagl í hárinu sem er umdeilt.
Ronaldo skartaði taglinu í Dubai þar sem hann var í fríi og hann mætti með það á æfingu í dag.
Ronaldo fær heldur betur að heyra það á samfélagsmiðlum, flestum finnst hárgreiðslan ansi ljót.
Þá er Ronaldo sagður vera að herma eftir Gareth Bale, fyrrum liðsfélaga sínum sem skartað hefur síðu hári.
Myndir af þessu má sjá hér að neðan.