Scott McTominay, miðjumaður Manchester United verður frá í átta vikur vegna meiðsla í hné. Ensk blöð segja frá.
McTominay meiddist í leik gegn Newcastle á öðrum degi jóla en hann hefur reynst liðinu afar mikilvægur.
United hafði vonast að McTominay yrði bara frá í fjórar vikur en frekari rannsóknir hafa leitt annað í ljós.
McTominay er skoskur landsliðsmaður en hann er með sködduð í liðbönd í hné og það tekur iðulega átta vikur að jafna sig af slíku.