David Moyes, nýr stjóri West Ham, ætlar að neyða félagið í að framlengja samning hans hjá félaginu.
Moyes var ráðinn stjóri West Ham á dögunum en hann er að taka við liðinu í annað sinn eftir dvöl þar tímabilið 2017-2018.
,,Það er klásúla í samningnum til að framlengja hann. Ég mun gera það ómögulegt fyrir þá að virkja hana ekki,“ sagði Moyes.
,,Það er undir leikmönnunum komið að sjá til þess. Það segir mikið um eigandann að hann vill gefa mér annað tækifæri eftir þá vinnu sem ég vann með mínu starfsfólki.“
,,Í þetta skiptið þá mun ég ekki gefa þeim annað val en að framlengja samninginn.“