Faðir John Terry, Ted Terry, var handtekinn um helgina fyrir að ráðast að kærustu sinni, Evelyn Minkey.
Frá þessu greina enskir miðlar en Ted er 65 ára gamall og hefur verið að hitta hina 42 ára gömlu Minkey.
Minkey hafði upp á nágrönnum Ted um helgina og grátbað þau um að hringja í lögregluna sem þau gerðu um leið.
Yfir 10 lögreglumenn mættu á svæðið á laugardagskvöldið en Minkey hafði áður öskrað á Ted um að láta sig vera og sagði hann einnig vera brjálæðing.
Terry eldri bauð ekki upp á vinalega handtöku og öskraði á lögreglumennina um að sleppa sér hið snarasta.
Hann var í gæsluvarðhaldi í 14 klukkutíma en var svo sleppt án kæru.
Minkey hlaut minniháttar meiðsli í átökunum en tekið var eftir skurð á vísifingri.
John, sonur Ted, er einn besti varnarmaður í sögu Englands en hann lék lengi með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.