Í hlaðvarpsþættinum sívinsæla, Dr. Football, var farið yfir kjörið á þjálfara ársins í dag en síðasti þáttur ársins var á dagskrá.
Þeir Hjörvar Hafliðason, Kristján Óli Sigurðsson og Mikael Nikulásson fóru þar yfir síðustu daga í knattspyrnunni.
Um helgina voru þjálfari ársins, lið ársins og íþróttamaður ársins tilkynnt á verðlaunahátíð í Hörpunni.
Óskar Hrafn Þorvaldsson var valinn þjálfari ársins en hann fór með lið Gróttu upp í Pepsi Max-deild karla mjög óvænt í sumar.
Það er án efa frábær árangur og fékk Óskar í kjölfarið starfstilboð frá Breiðabliki sem hann samþykkti.
Valið var þó ekki verðskuldað miðað við umræðuna í Dr. Football en þar var farið ítarlega yfir hlutina.
,,Svo þar það þjálfari ársins, það var heldur betur valdeflandi fyrir karlmenn sem eru yfir fertugt og vilja prófa eitthvað nýtt í lífinu. Valdeflingin felst í því að hann hættir hann Óskar að vinna sína hefðbundnu dagvinnu og fer að einbeita sér að þjálfun. Það gengur vel og hann er valinn þjálfari ársins,“ sagði Hjörvar.
,,Það er rosalega valdeflandi fyrir alla sem eru að hugsa um nýjan starfsvettvang. Hann tileinkaði líf sínu þjálfun og svo er þetta líka valdeflandi fyrir neðri-deildar þjálfara, það er verið að fylgjast með ykkur.“
,,Var ég glaðasti Hjörvar í heimi þegar þetta var tilkynnt? Algjörlega, var þetta rétt val? Alls ekki. Ég er viss um að Óskar sjálfur myndi kalla þá trommuheila sem völdu þetta ef hann væri að kommenta á þetta.“
,,Tölum bara hreina íslensku, Inkasso-deildin er léleg. Ég hef spilað þarna. Ef það væri verið að gera þátt um goðsagnir Inkasso-deildarinnar þá væri ég líklega í þáttunum. Þetta er ekki merkileg deild. Þetta er versti árangur toppliðs síðan 12-liða deild kom.“
,,Ef við ætlum að velja neðri-deildirnar þá hefðum við átt að velja Brynjar Skúlason sem fór með Fáskrúðsfjörð sem var spáð falli og fór með þá í toppsætið.“
Mikael þekkir Óskar vel og óskaði honum til hamingju með verðlaunin. Á sama tíma viðurkennir hann að valið hafi verið furðulegt.
,,Óskar er toppmaður og ég er búinn að óska honum til hamingju. Hann gerði stórkostlega hluti með Gróttu en mér fannst þetta smá furðulegt.“
Kristján Óli segir þá jafnframt að þeir sem velji þjálfara ársins séu vinir Óskars og að það sé ástæðan fyrir vali gærdagsins.
,,Af hverju var Ejub ekki þjálfari ársins þegar hann fór með Víking Ólafsvík upp úr þessari deild með stigameti? Því þessir gæjar sem kjósa eru ekki vinir Ejub Purisevic. Þetta eru allt vinir Óskar Hrafns og þetta er bara djók þetta kjör og við vitum það öll. Óskar þorði varla að tala við þessari viðurkenningu.“