Arsenal er stærsta félag Englands að sögn stjóra liðsins, Mikel Arteta, sem tók við á dögunum.
Arteta hefur stýrt Arsenal í tveimur leikjum en sá seinni tapaðist 2-1 heima gegn Chelsea í dag.
Spánverjinn er fyrrum leikmaður Arsenal og lék einnig með Everton í efstu deild.
,,Við erum stærsta félag Englands og við verðum að hafa þennan hroka og þessa trú,“ sagði Arteta.
,,Það verður að vera ótti á vellinum. Ég hataði alltaf að koma hingað sem leikmaður og við þurfum að nýta okkur það.“