David Moyes hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri West Ham United á Englandi.
Þetta staðfesti félagið í kvöld en Moyes snýr aftur til West Ham eftir dvöl þar tímabilið 2017-2018.
Moyes er 56 ára gamall Skoti en hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Everton þar sem hann var í 11 ár.
Seinna tók Moyes við Manchester United, Real Sociedad, Sunderland og svo West Ham.
Hann tekur við af Manuel Pellegrini sem var rekinn eftir slæmt gengi á þessari leiktíð.