Alireza Jahanbakhsh skoraði í gær sitt fyrsta mark fyrir lið Brighton í ensku úrvalsdeildinni.
Jahanbakhsh var keyptur til Brighton sumarið 2018 en hann kostaði félagið 17 milljónir punda.
Hann hafði raðað inn mörkum í hollensku úrvalsdeildinni en hefur verið í verulegum erfiðleikum á Englandi.
Jahanbakhsh gat ekki haldið aftur af sér í gær í 2-0 sigri á Bournemouth en hann skoraði fyrra mark liðsins.
Eftir markið þá grét vængmaðurinn en það hefur verið ansi mikill léttir að skora loksins fyrsta markið.
Þetta má sjá hér.