Sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic hefur skrifað undir samning við AC Milan á Ítalíu.
Þetta var staðfest í kvöld en Zlatan gerir samning við Milan út þetta tímabil og kemur á frjálsri sölu.
Þessi 38 ára gamli leikmaður yfirgaf LA Galaxy í nóvember og var orðaður við ýmis félög.
Zlatan lét með Milan frá 2010 til 2012 og skoraði þá 42 deildarmörk í 61 leik.
Zlatan er 38 ára gamall og verður fróðlegt að sjá hvort hann eigi enn heima á meðal þeirra bestu.