Það þarf stórslys og meira til svo að Liverpool verði ekki enskur meistari í vor, 30 ára bið stuðningsmanna félagsins er að taka enda. Liverpool vann efstu deild á Englandi síðast fyrir þrjátíu árum, liðið vann 0-4 sigur á Leicester í kvöld sem situr í öðru sæti. Forysta Liverpool er 13 stig á Leicester og á liðið leik til góða.
Roberto Firmino skoraði fyrsta mark leiksins og það eina í fyrri hálfleik, James Milner bætti við öðru marki úr vítaspyrnu. Roberto Firmino bætti við því þriðja áður en besti maður vallarins, Trent Alexander-Arnold bætti því fjórða við. Hann hafði lagt upp bæði mörkin fyrir Firmino og fiskað vítaspyrnuna. En Caglar Soyuncu, varnarmaður Leicester fékk boltann í hönd sína úr hornspyrnu Trent.
Þriðja markið sem Liverpool skoraði, var mark númer 500 undir stjórn Jurgen Klopp. Það var Firmino sem skoraði það en hann hefur skorað 74 af þessum mörkum sem liðið hefur skorað undir stjórn Klopp.
Þessir hafa skorað mest
84 Salah
74 Firmino
72 Mane