Mikel Arteta, nýr stjóri Arsenal hefur fengið þau skilaboð frá Granit Xhaka að hann vilji burt frá félaginu.
Xhaka var í byrjunarliði Arsenal í fyrsta leik Arteta við stýrið, gegn Bournemouth í dag. Þar lauk leiknum með 1-1 jafntefli.
Xhaka hefur verið í vandræðum hjá félaginu eftir stríð hans við stuðningsmenn félagsins, hann vill fara til Herta Berlin og spila undir stjórn Jurgen Klinsmann.
,,Ég segi það heiðarlega, við höfum náð samkomulagi við Herta og viljum fara þangað,“ sagði umboðsmaður Xhaka í kvöld.
,,Við höfum tjáð Raul Sanllehi og Edu það, auk þess sem Mikel Arteta hefur fengið sömu skilaboð.“