Það er stórleikur í ensku úrvaldeildinni klukkan 20:00 þegar Liverpool heimsækir Leicester.
Liverpool er á toppi deildarinnar en Leicester situr í öðru sæti, Liverpool hefur tíu stiga forskot á Leicester.
Liverpool varð heimsmeistari félagsliða um síðustu helgi og áhugavert að sjá hvernig liðið kemur til leiks aftur í deildinni.
Byrjunarliðin eru hér að neðan.
Leicester: Schmeichel(c), Barbosa Pereira, Evans, Söyüncü, Chilwell, Ndidi, Barnes, Praet, Tielemans, Maddison, Vardy
Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, Van Dijk, Gomez, Robertson; Wijnaldum, Henderson, Keita; Mane, Salah, Firmino.