Wanda Nara, eiginkona og umboðsmaður Mauro Icardi, hefur skotið á Romelu Lukaku, framherja Inter Milan.
Lukaku tók við af eiginmanni Nara í sumar en Icardi var sendur til Paris Saint-Germain eftir komu Belganns.
Nara segir að Lukaku hverfi í stóru leikjunum og minnir fólk á það að Inter sé úr leik í Meistaradeildinni.
,,Það væri gaman að sjá Lukaku líka í stóru leikjunum,“ sagði Nara í samtali við Tiki Taka.
,,Hann hefur ekki skorað í Meistaradeildinni, hann mun horfa á útsláttarkeppnina í sjónvarpinu.“
,,Síðasta nían sem Inter var með skoraði um 150 mörk fyrir félagið.“