Það er ekkert leyndarmál að Zlatan Ibrahimovic er ekki vinsæll í heimaborg sinni Malmö í dag.
Zlatan er uppalinn hjá Malmö en hann fór frá félaginu til Ajax á sínum tíma og sigraði svo alla Evrópu.
Hann er 38 ára gamall í dag og án félags en fyrr á árinu var byggð stytta af honum fyrir utan heimavöll Malmö.
Sú stytta kom á versta tíma en stuttu seinna ákvað Zlatan að kaupa 25 prósent hlut í keppinautum Malmö, Hammarby.
Eftir það hefur stytta Zlatan fengið slæma meðferð en margir kalla hann svikara fyrir þessi kaup.
Nú er búið að skera nefið af styttunni frægu eins og má sjá hér fyrir neðan.