Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson er búinn að rifta samningi sínum við rússnenska félagið Rostov.
Það er Íslendingavaktin sem greinir fyrst frá þessu af íslenskum miðlum en vitnar í rússnenska miðilinn Sport24.
Ragnar hefur lengi verið mikilvægur hlekkuri í liði Rostov en hann kom til félagsins í ársbyrjun 2018.
Fyrir það spilaði varnarmaðurinn með Fulham á Englandi en tækifærin voru af skornum skammti.
Þessi 33 ára gamli leikmaður er því án félags og er óvíst hvaða verkefni hann tekur að sér næst.