Liverpool er heimsmeistari félagsliða eftir leik við Flamengo í úrslitum – leikið var í Katar um helgina. Leikurinn var engin frábær skemmtun en það var lengi markalaust og fengu bæði lið ágætis færi.
Í uppbótartíma var útlit fyrir að Liverpool myndi tryggja sigur er dómari leiksins benti á vítapunktinn. VAR var hins vegar notað til þess að skoða atvikið nánar og á endanum var dómurinn tekinn til baka.
Liðin þurftu því að fara í framlengingu og þar var eitt mark skorað. Roberto Firmino gerði það fyrir Liverpool. Mark Firmino kom á 99. mínútu leiksins og reyndist nóg til að tryggja Liverpool sigur og þar með fyrsta titil liðsins í HM félagsliða.
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool bættist þarna í hóp öflugra manna. Um er að ræða fyrirliða sem hafa unnið Meistaradeildina, Ofurbikarinn og HM félagsliða á almanaksári.
Þarna voru fyrir, þeir Fernardo Hierro, Carlos Puyol, Philip Lahm, Andres Iniesta, Ilker Casillas, Sergio Ramos og Jordan Henderson