,,Það eru frábærar fréttir,“ sagði Gary Neville um orð Mino Raiola, umboðsmanns Paul Pogba um að leikmaðurinn vildi vinna titla með Manchester United.
Neville trúir ekki neinu sem Raiola segir enda vildi Pogba fara í sumar og fór ekki í felur með það, talið er að hann muni reyna að yfirgefa félagið í janúar.
,,Ég er spenntur að sjá Pogba hjá United næstu tvö eða þrjú árin, ánægður og hungraður Pogba sem vill vera hjá United er frábær leikmaður fyrir félagið.“
,,Ég trúi ekki einu orði sem umboðsmaður hans segir, ég trúi ekki neinu sem kemur frá honum.“