Antonio Rudiger, leikmaður Chelsea, varð fyrir kynþáttaníði á heimavelli Tottenham í gær. Rudiger spilaði með Chelsea gegn Tottenham en þeir bláklæddu unnu góðan 0-2 útisigur.
Í seinni hálfleik þá ræddi Rudiger við fyrirliða sinn Cesar Azpilicueta og greindi frá því að hann hafi orðið fyrir rasisma. Azpilicueta fór því og ræddi við Anthony Taylor, dómara leiksins, sem lét sína aðstoðarmenn vita.
Rudiger gaf einnig til kynna að hann hafi verið kallaður api af stuðningsmönnum heimaliðsins. Hann tjáði sig um atvikið eftir leik. ,,Það er mjög sorglegt að verða vitni af rasisma á knattspyrnuleik en það er mikilvægt að tala um það opinberlega,“ sagði Rudiger.
Gary Neville sérfræðingur Sky Sports hélt þrumuræðu á Sky eftir leikinn um kynþáttafordóma í Englandi. Það má sjá hér að neðan.