Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur svarað því af hverju það sé enginn Frakki í leikmannahópi liðsins.
Frakkland vann HM í Rússlandi síðasta sumar en þrátt fyrir það er enginn úr því liði í Liverpool sem er talið eitt besta ef ekki besta félagslið heims um þessar mundir.
,,Það er engin ástæða fyrir því,“ sagði Klopp spurður út í það af hverju enginn Frakki væri í Liverpool.
,,Kylian Mbappe spilar með PSG. Antoine Griezmann vildi fara til Barcelona og við vitum hversu gott lið það er.“
,,Við værum til í að fá franskan leikmann en flestir af þeim eru of dýrir fyrir okkur.“