Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var ekki í besta skapinu eftir 0-2 heimatap gegn Chelsea í kvöld.
Mourinho ræddi á meðal annars rauða spjald Heung-Min Son sem hann fékk í seinni hálfleik fyrir brot á Antonio Rudiger.
Son sparkaði létt í rifbein Rudiger eftir átök og ákvað VAR að gefa sóknarmanninum beint rautt.
Mourinho gaf í skyn að Rudiger hafi gert sem mest úr atvikinu og vonar að hann jafni sig.
,,Ég vona að Rudiger jafni sig fljótt á rifbeinsbrotinu því hann er augljóslega með brotin rifbein,“ sagði Mourinho.
,,Það var mikilvæg stund í leiknum þar sem VAR var frábær dómari.“