Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefur tjáð sig um mistök David de Gea í dag.
De Gea gerði sig sekan um hörmuleg mistök í 2-0 tapi gegn Watford er hann missti boltann í raun í eigið net.
,,Hann hefur verið svo góður á æfingum og einbeittur. Þetta er bara einn af þessum hlutum,“ sagði Solskjær.
,,Eitt markið voru mistök og hitt var vítaspyrna. David hefur verið fullur sjálfstrausts undanfarið og ég sé það ekki öðruvísi.“
,,Þetta voru mistök og þau gerast í fótbolta. Við æfum á hverjum degi til að koma í veg fyrir að þau gerist aftur.“