Það er útlit fyrir það að Hansi Flick muni stýra liði Bayern Munchen út tímabilið.
Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern, staðfesti það í gær eftir góðan 2-0 heimasigur á Wolfsburg.
Rummenigge segir að úrslitin undir Flick hafi verið góð og að þeir muni fá sér sæti í dag og ræða framtíðina.
Flick tók við af Niko Kovac sem var rekinn fyrr á tímabilinu og hefur frammistaðan batnað.
Undir stjórn Flick hefur Bayern unnið átta af síðustu 10 leikjum eftir ekki svo gott gengi undir Kovac.