Martin Keown, goðsögn Arsenal, hefur sent Mesut Özil, leikmanni liðsins, væna pillu.
Özil var ekki í leikmannahópnum gegn Everton í gær en talað var um að hann væri meiddur.
Keown kaupir það þó ekki og telur að Özil hafi óttast að vera ekki valinn af stjóranum Freddie Ljungberg.
Özil brást illa við í síðasta leik gegn Manchester City er hann var tekinn af velli og mun nú vinna með Mikel Arteta sem er nýr stjóri liðsins.
,,Arteta er að koma inn á mjög erfiðum tíma og Özil er eitt af vandamálunum sem hann þarf að taka á,“ sagði Keown.
,,Hann fór af velli gegn Manchester City og var ekki sáttur, hann leit ekki út fyrir að vera meiddur þar.“
,,Hann ákvað örugglega að taka sig úr myndinni því hann óttaðist að Freddie myndi ekki velja hann.“