Jose Mourinho, stjóri Tottenham, ætlar ekki að bjóða Frank Lampard upp á drykk eftir leik við Chelsea á sunnudag.
Mourinho og félagar fá Chelsea í heimsókn en Lampard er stjóri Chelsea og vann lengi með Mourinho sem leikmaður.
,,Þar til núna þá hef ég aldrei boðið manni þangað og ég held að ég muni ekki gera það með Frank,“ sagði Mourinho.
,,Eins og ég hef áður sagt þá er það stórt faðmlag fyrir leik og annað eftir leik, það er á hreinu. Það skiptir ekki hvernig fer og hver er ánægður.“
,,Ég verð alltaf þakklátur honum fyrir hvað hann gaf mér sem leikmaður. Ekkert mun breyta því.“