Paul Pogba myndi elska það að vinna titla með Manchester United segir umboðsmaður hans, Mino Raiola.
Pogba er orðaður við brottför frá United en Raiola staðfesti einnig að Real Madrid hafi sýnt honum mikinn áhuga fyrr á árinu.
,,Paul vill ná árangri og vera ánægður, hann vill vinna verðlaun og myndi elska að gera það með Manchester United,“ sagði Raiola.
,,Já það var stór áhugi frá Real Madrid en Manchester United hleypti honum ekki burt. Við gerðum ekkert stórmál úr því.“
,,Þið þekkið að leikmenn geti gert úlfalda úr mýflugu en Paul er ekki þannig svo við vinnum öðruvísi.“