Sverrir Ingi Ingason hefur verið frábær fyrir lið PAOK undanfarna mánuði en félagið spilar í Grikklandi.
Sverrir var í varahlutverki á síðustu leiktíð er PAOK vann deildina en er nú fastamaður í vörninni.
PAOK er að berjast um meistaratitilinn þar í landi og er á toppnum ásamt Olympiakos.
Sverrir var í dag valinn besti leikmaður PAOK í nóvember en stuðningsmenn félagsins kusu.
Josip Misic hafði unnuð verðlaunin tvo mánuði í röð en Sverrir var svo valinn bestur í dag.
🏆#11888MVP Ο Νοέμβριος του Ίνγκασον – https://t.co/wilPPzOrCH #TheIceman #Ingason #November pic.twitter.com/AMCEpy1YLy
— PAOK FC / ΠAOK (@PAOK_FC) 20 December 2019