Arsenal hefur staðfest ráðningu á Mikel Arteta, hann tekur við sem knattspyrnustjóri félagsins en viðræður hafa staðið yfir í fimm daga.
Arteta var áður aðstoðarþjálfari Manchester City en gerir þriggja og hálfs árs samning við Arsenal.
Unai Emery var rekinn á dögunum og Freddie Ljungberg hefur stýrt liðinu tímabundið, hann stígur nú til hliðar.
,,Þetta er mikill heiður, Arsenal er eitt stærsta félag í heimi. Við verðum að berjast um stærstu titla í leiknum, það hefur verið rætt í samtali mínu við eigendur félagsins,“ sagði Arteta.
,,Við vitum að það er mikil vinna sem bíður, ég hef mikla trú á þessu. Þetta gerist ekki á einni nóttu, það er mikið af efnilegum leikmönnum að koma.“
Welcome back, Mikel! 👋
Head coach of The Arsenal 👔 pic.twitter.com/lhsAfQ7cfq
— Arsenal (@Arsenal) December 20, 2019