Toby Alderweireld fer ekki frítt frá Tottenham næsta sumar, hann hefur skrifað undir nýjan samning til ársins 2023.
Alderweireld hefur ekki viljað framlengja við Tottenham um langt skeið, hann segir komu Jose Mourinho ástæðuna fyrir því að hann kroti undir. Toby hefur spilað með Tottenham frá árinu 2015, hann var á mála hjá Atletico Madrid en hafði verið á láni hjá Southampton.
Toby hefur spilað 98 landsleiki fyrir Belgíu, hann lék 50 leiki fyrir Tottenham á síðustu leiktíð.
Alderweireld hefur þénað 50 þúsund pund á viku en í dag fær hann 150 þúsund pund á viku, þreföldun á launum rétt fyrir jól.
Jan Vertonghen tók mynd af Alderweireld rétt eftir að hann hafi krotað undir, þar brosti varnarmaðurinn út að eyrum.