Hertha Berlin vill kaupa Granit Xhaka frá Arsenal í janúar. Sky í Þýskalandi segir frá þessu.
Xhaka er hataður hjá Arsenal eftir að hann gaf stuðningsmönnum félagsins fingurinn, staða hans skýrist þegar Mikel Arteta tekur við.
Jurgen Klinsmann, vill fá Xhaka til Berlínar og telur að hann geti styrkt liðið mikið. Xhaka er lykilmaður í landsliði Sviss.
Herta er í 13 sæti í þýsku úrvalsdeildinni en félagið vonast til að hafa efni á Xhaka sem er með góð laun hjá Arsenal.
Xhaka lék áður með Borussia Mönchengladbach áður en hann gekk í raðir Arsenal árið 2016.