fbpx
Sunnudagur 26.maí 2024
433Sport

Staðfestir áhuga á því að semja við Emil Hallfreðsson

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. desember 2019 10:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sean Sogliano, yfirmaður knattspyrnumála hjá Calcio Paova hefur staðfest áhuga félagsins á að semja við Emil Hallfreðsson. Emil hefur æft með félaginu undanfarið.

Emil hefur verið án félags síðan í sumar þegar samningur hans við Udinese rann út, Padova leikur í þriðju efstu deild Ítalíu en Emil skoðar hvort aðrir kostir komu upp. Ef ekkert annað kemur eru líkur á að Emil semji við liðið til að eiga möguleika á sæti í íslenska landsliðinu, fyrir umspilið um sæti á EM og síðan sæti í EM hópnum ef allt fer vel.

,,Emil? Hann vill spila á meðal þeirra bestu, til að geta átt möguleika á Evrópumótinu með Ísland. Hann var hjá mér í þrjú ár hjá Verona, honum hefur liðið vel á Ítalíu,“ sagði Sogliano.

,,Hann er frábær leikmaður, hann er ekki ungur en hann er frábær persóna. Algjör atvinnumaður, þegar leikmenn í þessari deild sjá hvernig hann hugsar um sig, þá læra þeir. Það er möguleiki á að samstarf milli Padova og Emils gangi upp.“

,,Ég bað hann um að koma of æfa hérna, sjá nokkra leiki og skoða síðan málið. Við munum ræða málið í rólegheitum og taka stöðuna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Besta deildin: Meistararnir lögðu tíu menn ÍA

Besta deildin: Meistararnir lögðu tíu menn ÍA
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Besta deildin: KR tapaði niður tveggja marka forystu gegn Vestra

Besta deildin: KR tapaði niður tveggja marka forystu gegn Vestra
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Manchester United bikarmeistari eftir sigur á Englandsmeisturunum

Manchester United bikarmeistari eftir sigur á Englandsmeisturunum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

United fær auka pening frá Dortmund

United fær auka pening frá Dortmund
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum
Staðfesta komu Rooney
433Sport
Í gær

Reka hann og þurfa að borga 15 milljónir

Reka hann og þurfa að borga 15 milljónir
433Sport
Í gær

Hetja vikunnar fáanleg fyrir um 30 milljónir

Hetja vikunnar fáanleg fyrir um 30 milljónir