Daniel Levy, eigandi Tottenham, er opinn fyrir því að ráða Mauricio Pochettino aftur til starfa í framtíðinni.
Pochettino var rekinn frá Tottenham í síðasta mánuði eftir yfir fimm ár hjá félaginu en hann og Levy eru góðir vinir.
,,Af hverju ekki? Ég loka ekki dyrunum á neitt,“ sagði Levy við Evening Standard.
,,Þetta er ekki eitthvað sem ég vildi sjá gerast. Þetta var gríðarlega erfitt fyrir mig persónulega.“
,,Hann hefur unnið í fótboltanum og hann skilur þetta. Þetta var ekki persónulegt. Ég er viss um að hann komi sterkari til baka og fær að þjálfa annað lið.“
,,Ég mun ekki sitja hérna og fara yfir fortíðina, það hjálpar ekki. Mauricio gerði frábæra hluti og ég óska honum alls hins besta. Við erum enn í sambandi.“