fbpx
Laugardagur 13.september 2025
433

Nökkvi Þeyr framlengir við KA

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. desember 2019 15:30

Nökkvi Þeyr.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nökkvi Þeyr Þórisson framlengdi í dag samningi sínum við knattspyrnudeild KA út sumarið 2022. Þetta eru gríðarlega jákvæðar fréttir enda er Nökkvi gríðarlega öflugur leikmaður þrátt fyrir að vera einungis tvítugur að aldri.

Nökkvi spilaði 18 leiki í deild og bikar fyrir KA á nýliðnu sumri og gerði í þeim tvö mörk. Hann kom til liðs við KA frá Dalvík/Reyni þar sem hann hjálpaði liðinu að tryggja sig upp um deild sumarið 2018. Þar áður var hann á mála hjá Hannover 96 í Þýskalandi.

,,Við gleðjumst mikið yfir því að halda Nökkva innan okkar raða og hlökkum mikið til að fylgjast með honum á komandi sumri,“ segir á heimasíðu KA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

KFR vann neðstu deild í gær í dramatískum leik

KFR vann neðstu deild í gær í dramatískum leik
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Óvænt nafn í hóp hjá City um helgina – Ekki spilað fyrir félagið í tæp tvö ár

Óvænt nafn í hóp hjá City um helgina – Ekki spilað fyrir félagið í tæp tvö ár