Manchester United mun spila við Manchester City í undanúrslitum enska deildarbikarsins.
Þetta varð staðfest í kvöld en búið er að draga hvaða lið eigast við í næstu umferð keppninnar.
City tryggði sér sæti í undanúrslitum með sigri á Oxford United en City vann 1-3 útisigur.
Fimmtán mínútum seinna hófst leikur United og Colchester sem lauk með 3-0 heimasigri Rauðu Djöflanna.
Fyrri leikur grannana fer fram á Old Trafford þann 6. janúar en sá seinni þann 27. janúar á Etihad.
Leicester City spilar þá við Aston Villa í hinum leiknum og má búast við miklu fjöri í báðum viðureignum.
Leicester byrjar á heimavelli gegn Villa en seinni leikurinn fer svo fram á Villa Park.