Piers Morgan, fréttamaður á Englandi og frægasti stuðningsmaður Arsenal fullyrðir að félagið sé búið að skrifa undir við Mikel Arteta um að taka við félaginu.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City hefur staðfest að Mikel Arteta sé í viðræðum við Arsenal en hann verði með City gegn Oxford í enska deildarbikarnum í kvöld. Hann er aðstoðarþjálfari City í dag.
Um er að ræða átta liða úrslit en Arteta hefur fundað með Arsenal frá því á sunnuag, félagið vill hann til starfa.
Arsenal fundaði með Arteta fyrir um 18 mánuðum síðan en þá fékk Unai Emery starfið. Emery var rekinn á dögunum og hefur Freddie Ljungberg stýrt liðinu tímabundið.
Fullyrt er að Arsenal borgi 1 milljón punda fyrir Arteta sem eru um 160 milljónir íslenskra króna.