Arsenal er að bíða eftir svari frá Mikel Arteta um hvort hann ætli að taka að sér starf, knattspyrnustjóra félagsins. Arsenal vonar að Arteta taki starfið og stýri liðinu um helgina gegn Everton.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City hefur staðfest að Mikel Arteta sé í viðræðum við Arsenal en hann verði með City gegn Oxford í enska deildarbikarnum í kvöld. Hann er aðstoðarþjálfari City í dag.
Um er að ræða átta liða úrslit en Arteta hefur fundað með Arsenal frá því á sunnuag, félagið vill hann til starfa.
Arsenal fundaði með Arteta fyrir um 18 mánuðum síðan en þá fékk Unai Emery starfið. Emery var rekinn á dögunum og hefur Freddie Ljungberg stýrt liðinu tímabundið.
,,Hann er mögnuð persóna, leggur mikið á sig og þess vegna er hann í starfi hérna. Hann er að funda með Arsenal, ég veit ekki hvað gerist,“ sagði Guardiola.