Íslandsvinurinn, Jurgen Klopp var í stuði þegar Logi Bergmann Eiðsson hitti hann í Bítlaborgini á dögunum. Logi var að vinna fyrir Símann og tók viðtal við Klopp eftir sigur á Manchester City, í ensku úrvalsdeildinni.
Síminn hefur verið að fara á vellina í vetur og Logi segir frá því hvernig það er að fá viðtöl við stórstjörnur fótboltans.
,,Ég er með seinna viðtalið, svo er Carragher hjá Sky að bíða eftir honum. Hann er að bíða eftir Klopp, þú færð tvær spurningar,“ sagði Logi en Klopp vildi ræða við Loga vegna þess að hann kom frá Íslandi. Þetta kom fram í hlaðvarpsþættinum, Steve Dagskrá.
Klopp heimsótti Íslands á síðasta ári, en Klopp skíðaði á Norðurlandinu meðan hann dvaldi á hótelinu Deplar í Skagafirði
Klopp vildi vita hvernig viðraði á klakanum. ,,Svo fer ég að tala við hann, hann er alveg slakur. Fer að spyrja mig um veðrið á Íslandi og hvernig það sé, alveg léttur.“
Logi segir að Klopp sé jafn viðkunnanlegur og hann virkar á fólk í sjónvarpi. ,,Stórkostlega viðkunnanlegur.“