Sean Dyche, stjóri Burnley, lenti í ansi undarlegu atviki nýlega eftir 5-0 tap gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.
Leikurinn fór fram í London og ákvað Dyche að dvelja þar aðeins lengur ásamt fjölskyldu sinni.
Eins ólíklegt og það er þá hitti Dyche kollega sinn Jose Mourinho, stjóra Tottenham, degi eftir tapið stóra.
,,Ég skal segja ykkur littla sögu. Eftir mjög slæman dag fyrir okkur og slæm úrslit þá daginn eftir, það eru átta milljónir manns í London, þá hitti ég Jose Mourinho!“ sagði Dyche.
,,Það var stórfurðulegt augnablik bæði fyrir mig og hann. Við höfðum báðir rétt fyrir okkur því hann sagði að þeir hefðu spilað vel og ég sagði að við hefðum ekki spilað vel.“
,,Þetta var bara lífsreynsla sem var heldur áhugaverð. Ég ræddi við hann meira en ég hef nokkurn tímann gert.“
,,Við áttum góðar tíu mínútur saman, hann var mjög kurteis og vinalegur við mína fjölskyldu.“