Kevin de Bruyne, er besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar þessa stundina. Sky Sports heldur utan um tölfræði.
De Bruyne hefur verið frábær með City og skoraði tvö mörk gegn Arsenal um helgina.
Um er að ræða tölfræði yfir fimm síðustu leiki í deildinni og Harry Kane kemur þar í öðru sæti. Tottenham hefur verið í stuði og má sjá marga leikmenn félagsins.
Tölfræði um þetta er hér að neðan.