Moise Kean, leikmaður Everton, fékk að koma inná sem varamaður gegn Manchester United í kvöld.
Leikið var á Old Trafford en Everton tókst að ná í stig gegn United í annars fjörugum leik.
Kean er efnilegur leikmaður Everton en hann kom til félagsins frá Juventus í sumarglugganum.
Á 70. mínútu fékk Kean tækifærið en hann var svo tekinn af velli aðeins 19 mínútum síðar.
Framherjinn var ekki meiddur heldur vildi Duncan Ferguson eyða tíma og fórnaði þar með unglingnum.
,,Ég þurfti að gera breytingu til að drepa tímann. Þetta var ekkert persónulegt gagnvart honum,“ sagði Ferguson.
➡️⬅️ Moise Kean
19 mins played
9 touches
Completed 1/4 passes
Won 0/5 duels
3 fouls conceded pic.twitter.com/mM2jkN0TH0— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) 15 December 2019