Sheffield United 0-2 Newcastle
0-1 Allan Saint-Maximin(15′)
0-2 Jonjo Shelvey(70′)
Newcastle vann óvæntan sigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Sheffield United.
Sheffield hefur spilað glimrandi vel á leiktíðinni miðað við ódýran leikmannahóp en tapaði á heimavelli í kvöld.
Sheffield var mun sterkari aðilinn í leiknum en tapaði þrátt fyrir það með tveimur mörkum gegn engu.
Allan Saint-Maximin og Jonjo Shelvey gerðu mörk Newcastle sem er í 11. sæti með 19 stig.