fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
433Sport

Neville gagnrýnir Arsenal: ,,Ekki hægt að þjálfa þá“

Victor Pálsson
Laugardaginn 30. nóvember 2019 11:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Neville, goðsögn Manchester United, hefur sent leikmönnum Arsenal ansi væna pillu.

Neville var reiður í gær eftir að Unai Emery var rekinn frá Arsenal eftir slæmt gengi á leiktíðinni.

Það er þó ekki bara Emery að kenna að sögn Neville og nefnir hann varnarmenn liðsins sem hafa ekki verið sannfærandi.

,,Við skulum hafa eitt á hreinu, það er ekki hægt að þjálfa þessa varnarmenn,“ sagði Neville.

,,Ég veit ekki hver hefur séð um leikmannakaup Arsenal síðustu 2-3 ár en ef ég væri í stjórninni þá væri ég búinn að sparka þeim burt eftir að hafa séð þetta hrap.“

,,Það er ekki möguleiki á að Emery hafi sagt David Luiz að reyna að spila einhvern rangstæðan tvisvar eða þrisvar eða hina ógeðslegu hlutina sem maður sér frá varnar og miðjumönnunum.“

,,Maður hugsar um Xhaka um daginn. Emery er heiðursmaður og það sést á hvernig hann lætur. Þetta er miklu dýpra en stjórinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni

Samtal Liverpool við enska landsliðsmanninn heldur áfram í vikunni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum

Valinn besti leikmaður liðsins en vill nú fara – Alls ekki hrifinn af nýja stjóranum
433Sport
Í gær

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar

Óttast ekki að missa sæti sitt ef Williams kemur í sumar