Árni Vilhjálmsson komst á blað hjá liði Kolos Kovalivka um helgina en hann fór þangað á dögunum.
Árni var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið en hann var í byrjunarliði gegn Desna.
Liðin leika í Úkraínu en Árni opnaði markareikninginn í fyrsta leik og skoraði í 2-0 sigri.
Árni byrjar því mjög vel með sínu nýja liði sem situr í 8. sæti úrvalsdeildarinnar.
Markið hans má sjá hér að neðan.
Árni Vill var ekki lengi að reima á sig skotskóna með sínu nýja liði. pic.twitter.com/9HFk6tcD0J
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) November 24, 2019