fbpx
Mánudagur 15.september 2025
433Sport

Fjórir vopnaðir menn brutust inn hjá stórstjörnu: Hún var nakin í rúminu með sex vikna barninu þeirra

433
Mánudaginn 25. nóvember 2019 09:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöld fara nú fram á Englandi yfir fjórum mönnum, sem brutust inn hjá Demarai Gray kantmanni Leicester og unnusta hans Emma Hickman í mars á þessu ári, Gray var ekki heima þegar brotist var inn. Gray er þekkt stærð í knattspyrnuheiminum og hefur spilað fyrir yngri landslið Englands.

Emma segir frá því að hún hafi verið nakinn að hugsa um sex vikna gamalt barn þeirra þegar mennirnir fjórir brutust inn. Dómarinn telur að innbrotsþjófarnir hafi notað Google til að finna út úr því hvar Gray ætti heima.

Þeir stálu 24 þúsund pundum í reiðufé og skartgripum þegar þeir brutust inn. Gray var ekki heima en Emma var í áfalli, innbrotið átti sér stað um hábjartan dag.

,,ÉG var sofandi þegar þeir komu inn í svefnherbergi, ég vissi ekki hvað var í gangi fyrr en ég sá mann með hníf. Ég var ekki í neinum fötum og var áfram undir sæng bara,“ sagði Emma.

Mennirnir öskruðu á Emma sem var að hugsa um sex vikna barnið þeirra. ,,Þeir sögðu mér að hreyfa mig ekki, spurðu hvar peningar og skartgripir væru. Ég sagði þeim að það væru peningar í vinstri skúffunni.“

,,Þeir voru allir vopnaðir, einn var með appelsínugulan hníf. Þetta var eins og sverð. Rolex úrið mitt var á náttborðinu, þeir sögðu að unnusti minn gæti bara keypt nýtt. Ég var í miklu áfalli.“

Á meðal þeirra sem brutust inn voru feðgarnir Nicholas Rothero, 34 ára , og sonur hans Cory Rothero, 18 ára, þeir hafa játað brot sitt en aðrir neita. Yfirvöld telja að þeir hafi stundað innbrot í talsvert langan tíma og eru þeir grunaðir um fleiri brot.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan og Þróttur með sigra – Víkingur upp í efri hlutann

Stjarnan og Þróttur með sigra – Víkingur upp í efri hlutann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sjáðu fallegt augnablik í dag – Meyr er hann tók við óvæntum glaðningi

Sjáðu fallegt augnablik í dag – Meyr er hann tók við óvæntum glaðningi